Zap

Þetta er dásamleg frétt

Ég veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta... "Sérfræðingur í samfélagslegri ábyrgð" ? .... Mig langar ekki til að trúa þessari frétt.. Þurftu þeir í alvörunni að ráða mann/sérfræðing vegna þess að þeir skildu ekki við hvað var átt við með samfélagslegri ábyrgð ?. Eða er það þannig að næst þegar þeir ganga fram af fólkinu í landinu að þá verði við sérfræðing bankans í samfélagslegri ábyrgð að sakast ? ... Vinsamlegast einhver útskýri þetta fyrir mér ?
mbl.is Samfélagsleg ábyrgð Landsbankans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

hmm.. Ég er búin að lesa KCNA síðan 1998 minnir mig..

http://kcna.co.jp

KCNA hefur verið uppi síðan 97... Var nú kostulegri lesning í þá daga.. man að árið 1998 var maður að lesa fréttir eins og "60 ára afmæli þess að Kim Il Sung fann upp flugvélina" og "Norður kórea fór á Ólympíuleikana í seinustu viku og vann allt" ..

Þessi  nýja síða virðist hinsvegar vera hýst í Norður Kóreu.. sem að er nýtt.. Hin var alltaf hýst í Japan.. Kim er greinilega kominn með samband inn í landið.. sem að kemur á óvart.. 


mbl.is Norður Kórea opnar vefsíðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig frétt er þetta eiginlega ???

Erum við í Norður-Kóreu ? maður fær bara kjánhroll...
mbl.is „Viðhorf bankanna hafa breyst“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki kosningar takk

Ég var í mótmælunum í gær og gat ekki séð að fólk væri neitt sérstaklega að kalla eftir kosningum. Hinsvegar var alger einhugur um að núverandi stjórnvöld gerðu eitthvað fyrir heimili landsmanna. Það var jú það sem þeir lofuðu að gera en sviku.

Afhverju er Þór Saari jafn ágætur og hann er, að kalla eftir kosningum... Á það eftir að bjarga einhverju ? 

Við þurfum að taka höndum saman og koma á öðru kerfi hér á Íslandi, óháð pólitík og fjármálaöflum. Ég er sannfærður um að Íslendingar geti þetta, en við gerum það ekki með að grenja út aðrar kosningar og fá sama draslið yfir okkur aftur.


mbl.is Ekkert boð komið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Besta landkynning allra tíma....

Ég er ekki frá því að þetta myndskeið frá ferðalagi Top Gear mann sé ein besta landkynning sem að Ísland hefur fengið. Ég er búin að rekast á bæði þetta atriði og svona "outtakes" úr því útum allt net... Hinsvegar hefur lítið bólað á inspired by Iceland, sem að kostaði okkur nokkur hundruð milljónir.

Ég hugsa að ég nenni ekki að vera Íslendingur mikið lengur.. það er bara orðið of kjánalegt...


mbl.is Löggan skoðar Top-gear
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hörð viðbrögð, tja...

Nokkuð kostulegt að hugsa til þess að þessi mynd eigi eftir að vekja upp harðari viðbrögð hérna vestanhafs (eða hjá okkur þeas) enn nokkru sinni hjá múslimum. Eflaust eiga einhverjir öfgasinnaðir og illa þenkjandi múslimar eftir að rjúka út á götu, brenna hollenska flaggið og lýsa því yfir að Geert Wilders sé réttdræpur hvar sem að í hann næst. Einnig eiga eflaust öfgasinnaðir og illa þenkjandi kristnir vesturlandabúar eftir að rjúka beint í tölvurnar sínar og blogga villt og galið um allt sem að þeim þykir miður í fari múslima. Kannski er það bara vandamálið, að þeir sem að fara mest frammi úr báðum fylkingum eru öfgafólkið. Ég bjó um tíma í Svíþjóð í hverfi sem að mætti kalla innflytjendahverfi. Það ægði þarna saman öllum þjóðar og trúarhópum enn ég man ekki að það hafi verið nokkuð vandamál. Fyrr enn Svíarnir fóru að reyna að halda upp á fjölmenningardaginn :) Góðar stundir....
mbl.is Umdeild kvikmynd á vefnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"In your face" Smáís

Frábært mál. Ekki mikið meira um það að segja ....
mbl.is Máli gegn Istorrent vísað frá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvitað á að sniðganga Ólympíuleikana...

Það á að sniðganga Kínverskar vörur. Það á að slíta við þá stjórnmálasambandi og ekki segja þeim hvað klukkan er fyrr enn þeir taka til í sínum málum. Eitthvað sem að stjórnvöld landa sem að telja sig til siðmenntaðra hefðu átt að gera fyrir löngu.
mbl.is Mótmæli við kínverska sendiráðið í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fleiri Bondar, Færri Bombur.

Gott mál hjá Gordon Brown. Mér lýst vel á hann. Ég held að hann eigi eftir að gera góða hluti fyrir Bretland.
mbl.is Bretar ráða þúsund njósnara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað gerðu þeir þá ?

 Hvernig í ósköpunum fóru þeir að því að kveða niður mótmælin. báðu þeir bara alla heitt og innilega um að fara heim ? . Það er ekki öll vitleysan eins. með ólíkindum að þeir reyni að halda svona vitleysu fram við alþjóðasamfélagið.  Það þarf nú engum að dyljast færni kínverskra stjórnvalda í múgæsingarstjórnun. Skemmst er að minnast þegar þeir fóru diplómatísku leiðina á Tianmen og skrölltu yfir fólkið sitt á skriðdrekum. Og þótti frekar lítið um ef að mig minnir rétt.

 Nú er mál að sýna kínverskum stjórnvöldum að okkur er nóg boðið og hafa verið boðuð mótmæli fyrir framan Kínverska sendiráðið klukkan 17 í dag. Vona að flestir sem að lesa þetta geti mætt..


mbl.is Kínverskir hermenn „beittu ekki valdi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband